Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að dala samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf. og mælist nú 24,2% sem er 10% minna fylgi en í byrjun desember á síðasta ári. Þá nýtur Framsóknarflokkinn nú stuðnings 17% kjósenda sem er veruleg breyting frá síðustu könnun þegar rétt um 5% sögðust kjósa flokkinn, væri gengið til kosninga í nú. Framsóknarflokkurinn kaus sér nýja forystu á landsfundi helgina áður en könnunin var gerð og virðist afstaða kjósenda hafa breyst mikið í kjölfar breytinganna. Stuðningur við Samfylkinguna minnkar mikið í þessari könnun og fer úr 27,1% í 16,7%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að dala og mælist nú 24,3%. Vinstri grænir mælist enn stærsti flokkurinn, en 28,5% aðspurðra sögðust kjósa VG væri gengið til kosninga í dag. Fylgi Frjálslyndra mælist nærri óbreytt í 3% og fylgi Íslandshreyfingar 2,2%. Tæp 8% sögðust vilja kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast.
|
Umtalsverður munur mælist á fylgi við Framsóknarflokkinn eftir búsetu. Þannig nýtur flokkurinn stuðnings 13% höfuðborgarbúa en fylgið mælist öllu meira á landsbyggðinni, eða 24%. Nokkur munur er jafnframt á fylgi annarra flokka eftir búsetu svarenda. Minnstur munur á fylgi eftir búsetu mælist hjá Vinstri grænum, en flokkurinn mælist með 28-29% fylgi hvort heldur sem er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Samfylkingin nýtur 17,9% fylgis á höfuðborgarsvæðinu, en 14,6% fylgi á landsbyggðinni. 25,7% kjósenda á höfuðborgarsvæðinu styðja Sjálfstæðisflokkinn en 22% á landsbyggðinni.
Könnunin var síma- og netkönnun, úrtakið var 18-67 ára handahófsúrtak úr þjóðskrá, fjöldi svarenda var 1749 og könnunin var framkvæmd 20.-21. janúar.
|